Sjórnendaþjálfun

Inga vinnur með stjórnendum og sérfræðingum sem vilja ná enn betri árangri, bæði fyrir sig og hópinn sinn.

 

Sjaldan eða aldrei hafa breytingar verið jafn miklar á störfum og vinnuumhverfi  og nú. Ábyrgð stjórnenda er mikil og miklar kröfur gerðar til frammistöðu þeirra, hvort sem það er forstjóri stórfyrirtækis eða stofnunar eða hópstjóri í litlum hóp.  Það eru miklar áskoranir fólgnar í þeim breytingum sem eru að eiga sér stað og í því að styðja starfsmenn auk þess að hafa yfirsýn yfir verkefnin og frammistöðu teymisins. 

Stjórnendaþjálfun er vettvangur fyrir stjórnendur til að vinna með hlutlausum aðila sem hefur þann eina tilgang að styðja stjórnandann með aðferðum markþjálfunar og aðstoða hann við að finna bestu leiðina fyrir sig. Stjórnendaþjálfun miðast alltaf að þörfum hvers og eins, því það er svo  mismunandi hvaða áskorunum hver og einn stendur frammi fyrir. Það geri ég með því að spyrja spurninga og með því að koma með fleiri sjónarhorn.

Það er hver og einn sem stýrir því hvað er mikilvægt að vinna með hverju sinni og þess vegna er tíminn vel nýttur.

Hér fyrir neðan eru dæmi um útgangspunkta sem getur verið áhrifaríkt að vinna með:

Hverjar eru þínar helstu áskoranir?

Hvað er mikilvægt fyrir þig sem stjórnanda að leggja áherslu á?

Fyrir hvað vilt þú standa sem stjórnandi?

Hvernig nærðu betri árangri með teyminu?

Hvernig samskipti áttu við samstarfsfólk?

Hvað getur þú gert til að bæta þig sem stjórnanda?

Hverjir eru helstu styrkleikar þínir?